Félagsbústaðir óska eftir tilboðum í verkið: Barónsstígur 30 og Bergþórugata 41-45, viðhald utanhúss.
Verkefnið felst í almennum steypu- og múrviðgerðum á öllum útveggjum hússins ásamt því að endurnýja alla glugga og hurðar. Mála á alla útveggi, endurnýja og endurbæta þak og þakvirki
hússins. Húsið er umsagnarskylt hjá Minjastofnun Íslands, og er útfærsla á endurbótum gerð í samvinnu við stofnunina.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
Háþrýstiþvottur ………………………………. 750 m2
Sílanböðun ……………………………………. 750 m²
Viðgerðir á sprungum ………………………… 50 m
Viðgerðir á ryðpunktum ……………………500 stk
Múrviðgerðir á flötum ………………………. 150 m²
Múrhúðun flata(filtun)………………………. 750 m²
Málun flata …………………………………….. 750 m²
Endurnýjun á gluggum og hurðum ……… 85 stk
Endurnýjun þaks …………………………….. 370 m²
Um er að ræða almennt útboð, og eru hæfir bjóðendur hvattir til að taka þátt í útboðinu. Hægt verður að nálgast útboðsgögn á rafrænum útboðsvef Félagsbústaða, tilboðum skal einnig skilað inn á útboðsvefinn og verða þau opnuð rafrænt þegar tímafrestur er liðinn.
Haldinn verður kynningarfundur á verkstað miðvikudaginn 15. mars kl. 14:00, áhugasamir bjóðendur eru hvattir til að mæta og kynna sér aðstæður.
Útboðsgögn afhent: | 09.03.2023 kl. 10:30 |
Skilafrestur | 29.03.2023 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 29.03.2023 kl. 14:00 |