Home Fréttir Í fréttum 20.03.2023 Félagsbústaðir hf. Endurnýjun þakklæðningar að Jórufelli 2-12

20.03.2023 Félagsbústaðir hf. Endurnýjun þakklæðningar að Jórufelli 2-12

290
0
Mynd: Félagsbústaðir

Félagsbústaðir óska eftir tilboðum í verkið:  Jórufell 2-12, endurnýjun þakklæðningar o.fl.

<>

Um er að ræða hefðbundna endurnýjun á þakklæðningu ásamt öllu tilheyrandi, einnig endurnýjun á kvistgluggum og að koma fyrir snjógildrum við þakbrúnir.

Umræddur þakflötur telur um 1.325 fermetra, en allar magntölur og aðrar upplýsingar er að finna í útboðsgögnum.

Um er að ræða almennt útboð, og eru hæfir bjóðendur hvattir til að taka þátt í útboðinu. Ekki verður haldinn sérstakur kynningarfundur um verkið, en bjóðendur eru hvattir til að kynna sér aðstæður á verkstað.

Útboðsgögn afhent: 06.03.2023 kl. 16:00
Skilafrestur 20.03.2023 kl. 14:00
Opnun tilboða: 20.03.2023 kl. 14:00

Hægt verður að nálgast útboðsgögn á rafrænum útboðsvef Félagsbústaða, tilboðum skal einnig skilað inn á útboðsvefinn og verða þau opnuð rafrænt þegar tímafrestur er liðinn.