Home Fréttir Í fréttum Snjóflóðavarnir endurbættar á Flateyri

Snjóflóðavarnir endurbættar á Flateyri

66
0
Mynd: Verkís

Ofanflóðavarnirnar fyrir ofan Flateyri voru reistar eftir mannskæð snjóflóð fyrir rúmum aldarfjórðungi.

<>

Í janúar 2020 sýndi sig að úrbóta væri þörf, þegar tvö flóð runnu framhjá görðunum og olli annað tjóni í höfninni og féll hitt á íbúðarhús. Með endurbótum sem á að ráðast í í sumar á snjóflóðavarnagarðurinn að standast hamfarir sem má reikna með á þúsund ára fresti.

Verkfræðistofan Verkís hefur unnið að tillögum um endurbætur undir stjórn Kristínar Mörthu Hákonardóttur snjóflóðaverkfræðings.

Í frétt á heimasíðu Verkís kemur fram að lagt sé til að „reistar verði þrjár keiluraðir ofan núverandi leiðigarða til þess að draga úr flóðhraða í bæði iðufaldi og þéttum kjarna áður en flóð lendir á leiðigarði og aðskilja iðufald og þéttan kjarna í flóði.

“ Enn fremur er lagt til að þvergarðurinn milli leiðigarðanna verði endurbyggður hærri og brattari en áður, með örlítið breyttri legu. Þar að auki er lagt til að byggja nýjan leiðigarð sem beinir flóðum frá höfninni.

Jafnframt leggur verkfræðistofan til að reistir verði tveir kílómetrar af snjósöfnunargrindum í hlíðum Eyrarfjalls sem eiga að draga úr tíðni flóða. Einnig er talin ástæða til að styrkja glugga- og dyraop sem vísa upp í fjall á þeim húsum sem eru á  áhættusvæðum.

Heimild:BBl.is