Opnun tilboða 25. október 2022. .Sveitarfélagið Skagafjörður óskaði eftir tilboðum í endurbyggingu Efrigarðs í Sauðárkrókshöfn.
Helstu magntölur og verkþættir eru:
• Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi bryggju.
• Þilskurður fyrir stálþilsrekstur um 90 m.
• Grafa fyrir akkerisstögum og ganga frá stagbita og stögum.
• Jarðvinna, fylling og þjöppun.
• Reka niður 67 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ20-700 og ganga frá stagbitum og stögum.
• Steypa um 90 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2023.