Home Fréttir Í fréttum 10.10.2022 Forval – Endurbætur og breytingar – Litla Hraun

10.10.2022 Forval – Endurbætur og breytingar – Litla Hraun

208
0
Litla-Hraun. mbl.is/Ó​mar Óskars­son

Ríkiskaup, fyrir hönd, Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE), kt. 510391-2259,óskar eftir umsóknum um þátttökurétt verktaka (verktaki með verkfræðiteymi) í forvali fyrir lokað útboð á verkfræðihönnun og framkvæmd vegna nýbygginga og breytinga og endurbóta á núverandi húsnæði fangelsins á Litla Hrauni.

<>

Áætlaður hönnunar og framkvæmdakostnaður er um 2,1 milljarður.

Áætlaðar stærðir í verkefninu eru:

  • Nýbyggingar fyrir starfsemina eru áætlaðar 1.300 m2
  • Endurgerð á núverandi húsnæði 2.000 m2
  • Lagfæringar á lóð og umhverfi með uppskiptingu svæða

Forvalið er opið öllum hæfum umsækjendum og er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL).

Allar nánari upplýsingar um ferlið og útboðsskilmála er að finna gjaldfrjálst í útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign, á vefslóðinni https://tendsign.is/

Leiðbeiningar um skráningu og skil á tilboðum er hægt að nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa.