Skurðgrafa fór í sjóinn í höfninni á Borgarfirði eystra í morgun. Gröfustjórinn komst hjálparlaust í land og sakaði ekki.
Grafan var við framkvæmdir í smábátahöfninni við Hafnarhólma á Borgarfirði. Talið er að malarpúði hafi gefið sig undan beltum gröfunnar þannig að hún rann í sjóinn.
Stjórnandi gröfunnar komst út af sjálfdáðum og náði að stökkva í land. Hann sakaði ekki.
Grafan maraði í hálfu kafi til að byrja með, en fór öll í kaf á flóði síðdegis. Hún er enn í sjónum og bíður þess að verða dregin á þurrt.
Heimild: Ruv.is