Vegagerðin óskar eftir tilboðum í byggingu sjóvarna við Ólafsbraut og Ennisbraut í Ólafsvík og á Hellnum, heildarlengd garða um 720 m.
Helstu magntölur:
- Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 8.800 m3
- Upptekt og endurröðun grjóts um 8.700 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31.ágúst 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 8. ágúst 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 23. ágúst 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.