Home Fréttir Í fréttum Ekki algengt að byrjað sé á framkvæmdum án tilskilins mats

Ekki algengt að byrjað sé á framkvæmdum án tilskilins mats

210
0
Mynd: Austurfrett.is

Sérfræðingur hjá Skipulagsstofnun segir sjaldgæft að farið sé í stórar framkvæmdir án undangengins umhverfismats, eins og raunin er um vinnu við annan áfanga Mjóeyrarhafnar. Sveitarfélagið Fjarðabyggð virðist ætla að sleppa með skrekkinn.

<>

Umhverfismat og skipulag stendur nú yfir fyrir annan áfanga Mjóeyrarhafnar en búið er að fylla upp í rúma tíu hektara af þeim tólf sem þarf fyrir framkvæmdina. Það var að mestu gert haustið 2020 en þegar gera átti nýtt deiliskipulag fyrir svæðið kom í ljós að umhverfismat vantaði.

Í samtali við Austurfrétt sagði Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri, að yfirsjón hefði orðið hjá sveitarfélaginu, sem er framkvæmdaaðilinn. Talið hefði verið að þegar fyrsti áfangi hafnarinnar, núverandi höfn, var gerður árið 2005 hefði umhverfismat verið gert fyrir mögulega stækkun. Svo reyndist ekki.

Í áliti stofnunarinnar á matsáætlun segir að um sé að ræða ámælisvinnubrögð af hálfu Fjarðabyggðar sem koma þurfi í veg fyrir að endurtaki sig. Jón Björn sagði búið að endurskoða og brýna verkferla innan sveitarfélagsins.

Í svari Jakobs Gunnarssonar, sérfræðing á sviði umhverfismats hjá Skipulagsstofnun, segir að ljóst sé að í þessu tilfelli hafi orðið mistök sem ekki séu algeng, að hefja framkvæmdir við matsskyldar framkvæmdir án mats. Lögum samkvæmt sé óheimilt að gefa út framkvæmdaleyfi fyrr en álit stofnunarinnar um umhverfismat liggi fyrir.

Stofnunin líti hins vegar svo á að um undantekningartilfelli sé að ræða og það hafi verið mat stofnunarinnar að fengnum skýringum á mistökunum að rétt væri að ljúka umhverfismati fyrir annan áfanga, þótt framkvæmdirnar séu langt komnar.

Skipulagsstofnun hefur heimilt til að leggja á stjórnvaldssektir sem hefur hafið framkvæmdir, eins og í þessu tilfelli, án umhverfismats. Heimildin var þó ekki lögfest fyrr en árið 2019, eftir að framkvæmdir við annan áfanga Mjóeyrarhafnar hófust. Ákvæðið á því ekki við í þessu tilfelli.

Heimild: Austurfrett.is