Home Fréttir Í fréttum 29.06.2022 Hverfið mitt 2022 – Vestur – Vesturbær

29.06.2022 Hverfið mitt 2022 – Vestur – Vesturbær

156
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hverfið mitt 2022 – Vestur – Vesturbær, útboð nr. 15580

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2022 í vesturhluta Reykjavíkurborgar.

Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir jarðvinna, lagnir, timburvirki, steypuvirki, stálvirki, hellulögn, gróðursetning og þökulögn.

Helstu magntölur:

  • Gröftur                                   660 m3
  • Fylling                                    540m3
  • Mótasmíði                              50 m2
  • Bendistál                                500 kg.
  • Stálvirki                                  1.951 kg.
  • Gröftur fyrir lögnum                130 m3
  • Vatnslögn                                61 m
  • Fylling í skurði                        130 m3
  • Steinalögn                              165 m2
  • Þökulögn                                1000 m2
  • Tré -stofntré                            14 stk.
  • Runnar                                    125 stk.

Áætluð verklok: 31. október 2022.    

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:20 þann 15. júní  2022.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 29. júní 2022.