Home Fréttir Í fréttum 05.07.2022 Hringvegur (1): Suðurlandsvegur, Bæjarháls – Hólmsá, hönnun

05.07.2022 Hringvegur (1): Suðurlandsvegur, Bæjarháls – Hólmsá, hönnun

353
0

Vegagerðin, óskar eftir tilboði í for- og verkhönnun fyrir tvöföldun Hringvegar (1), Suðurlandsvegar frá Bæjarhálsi í Reykjavík að Hólmsá á mörkum Mosfellsbæjar og Kópavogs.

<>

Áætlað er að skipta verkinu upp í 5 áfanga en einungis skal for og verkhanna áfanga 1. og 2 (valkost 2).

Um er að ræða tvöföldun á um það bil 5,1 km löngum vegarkafla. þá skal hanna hliðarvegi (Vegbrekkur, Hafravatnsvegur) og tengingar (Heiðmörk) ásamt hönnun á heilstæðu stígakerfi fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendur.

Á vegkaflanum eru 3 vegamót við stofn- og tengivegi ásamt tengingum inn á bílastæði og bensínstöð, þá skal hanna nýtt bílastæði austan við bensínstöð.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 1. júní 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  5. júlí  2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þriðjudaginn 12. júllí 2022 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.