Home Fréttir Í fréttum 15.06.2022 Hverfið mitt 2022 – Vestur – Miðborg og Hlíðar

15.06.2022 Hverfið mitt 2022 – Vestur – Miðborg og Hlíðar

224
0
Mynd: Haraldur Guðjónsson

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hverfið mitt 2022 – Vestur – Miðborg og Hlíðar, útboð 15563

Lauslegt yfirlit yfir verkið

Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2022 í vesturhluta Reykjavíkurborgar.

Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir jarðvinna, stígalýsing, hellulögn, gróðursetning og þökulögn.

Helstu magntölur eru:

  • Gröftur                                   435 m3
  • Fylling                                    350 m3
  • Hellulögn                                360 m2
  • Þökulögn                                700 m2
  • Tré -stofntré                             52 stk.

Áætluð verklok: 31. október 2022.    

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:00 þann 30. maí  2022.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 15. júní 2022.