Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu vegar á um 1,0 km kafla og endurbyggingu á um 1,2 km löngum kafla milli Vesturhópshóla og Þorfinnsstaða. Einnig er inni í verkinu bygging heimreiða og tenginga.
Áætlaðar magntölur:
– Fyllingarefni úr námum 17.090 m3
– Fláafleygar úr skeringum 4.680 m3
– Ræsalögn 121 m
– Styrktarlag 15.400 m3
– Burðarlag 3.500 m3
– Malarklæðing 250 m3
– Tvöföld klæðing 13.450 m2
– Vegrið 280 m
– Frágangur fláa 30.220 m2
– Frágangur á námum 14.500 m2
Verkinu skal að fullu lokið 15. ágúst 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með 2. maí 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. maí 2022.
Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.