Vegagerðin óskar eftir tilboðum í verkið „Hrútafjörður sjóvarnir, Reykir og Borgir 2022“.
Helstu verkþættir eru:
· Útlögn grjóts og kjarna úr námu um 1.400 m3
· Upptekt og endurröðun um 200 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. september 2022
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 14. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. mars 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign