Home Fréttir Í fréttum 29.03.2022 Malbikun í Mosfellsbæ 2022

29.03.2022 Malbikun í Mosfellsbæ 2022

174
0
Mosfellsbær

Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Malbikun í Mosfellsbæ
Mosfellsbær óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í útboði vegna malbikunar í Mosfellsbæ. Verktaki sem fær verkefnið mun þurfa að gera ráð fyrir og taka tillit til m.a. nágranna, umferð íbúa sem og annarra verktaka í og við framkvæmdasvæði.

<>

Helstu verkþættir eru:

Verkið felur í sér viðgerðir á skemmdum í malbiksslitlagi gatna og stíga, yfirlagnir gatna og nýlagnir gatna og stíga, auk jöfnun með mulning undir malbik.  Innifelur það í sér m.a. viðgerðir á skemmdum, litlum sem stórum, fræsun gatna og malbikun.

Verkinu skal að fullu lokið samkvæmt verkefnalista fyrir árslok 2022

Útboðsgögn verða afhent í gegnum Ajour útboðsvef Mannvits, https://mannvit.ajoursystem.is/  frá og með klukkan 10:00 á þriðjudeginum 1.mars 2022. Tilboðum skal skilað á sama stað, útboðsvef Mannvits, https://mannvit.ajoursystem.is/ , eigi síðar en þriðjudaginn 29.mars  kl.13:00. Ekki verður haldinn opnunarfundur en niðurstöður verða birtar á útboðsvef Mannvits og heimasíðu Mosfellsbæjar.