Home Fréttir Í fréttum Teymi Arkís, KPMG, Landhönnunar og Verkís voru hlustskörpust í samkeppni að móta...

Teymi Arkís, KPMG, Landhönnunar og Verkís voru hlustskörpust í samkeppni að móta framtíð Gömlu hafnarinnar

189
0

Þann 14. janúar sl. auglýstu Faxaflóahafnir í samstarfi við Arkitektafélag Íslands eftir teymi til að vinna þróunaráætlun fyrir Gömlu höfnina í Reykjavík.

<>

 

Verkefnið fól í sér að mynda teymi til að móta framtíð Gömlu hafnarinnar í Reykjavík og marka framtíðarstefnu svæðisins.

Þrír aðilar sátu í valnefnd: Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna, Inga Rut Hjaltadóttir sviðsstjóri framkvæmdasviðs Faxaflóahafna og Kristján Örn Kjartansson arkitekt sem tilnefndur var af Arkitektafélagi Íslands.

Alls bárust inn 9 umsóknir af mjög reynslumiklum og hæfum umsækjendum. Nú er búið að velja það teymi sem mun sjá um mótun Gömlu hafnarinnar.

Teymið sem var hlutskarpast samanstendur af eftirfarandi fyrirtækjunum:
Arkís, KPMG, Landhönnun og Verkís. Nánar er fjallað um verkefnið inn á heimasíðu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.

Heimild: Faxaflóahafnir.is