Home Fréttir Í fréttum Víkkun flóðrásar við varnargarð á Flateyri að mestu lokið

Víkkun flóðrásar við varnargarð á Flateyri að mestu lokið

154
0

Síðan í haust hefur verið unnið við víkkun flóðrásar við snjóflóðavarnargarðinn á Flateyri og flóðrásin hefur verið hreinsuð.

<>

Vinna við verkið hófst í október 2021 eftir að tilboði Suðurverks hf að upphæð 112,5 milljóna hafði verið tekið.

Vinnan fólst meðal annars í að fjarlægja efni úr efri hluta fjallsins, fjarlægja uppsafnað set á svæðinu, drena vinnusvæðið og byggja slóða að námu.

Efnið sem var fjarlægt úr rásinni var flutt á sorpsvæði við Klofning.

Í síðari hluta desember 2021 var verkinu að mestu leyti lokið en jöfnun efnis sem flutt var á sorpsvæði og sáning flóðrásar verður kláruð í vor.

Heimild: BB.is