Home Fréttir Í fréttum Opnun útboðs: Vestfjarðarvegur (60) um Gufudalssveit: Kinnarstaðir – Þórisstaðir, eftirlit og ráðgjöf

Opnun útboðs: Vestfjarðarvegur (60) um Gufudalssveit: Kinnarstaðir – Þórisstaðir, eftirlit og ráðgjöf

206
0

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í  eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Vestfjarðarvegur (60) um Gufudalssveit, Kinnarstaðir – Þórisstaðir.

<>

Verkið felur í sér nýbyggingu Vestfjarðarvegar á um 2,7 km kafla ásamt byggingu 260 m langrar steyptrar brúar yfir Þorskafjörð.

Vegurinn er alfarið byggður í nýju vegsvæði sem tengist Vestfjarðarvegi í báða enda.

Brúin er steypt eftirspennt bitabrú í sex höfum.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 30. júní 2024

 

Eftirtaldir lögðu fram tilboð fyrir lok tilboðsfrests:

Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík
Mannvit hf., Kópavogi
Verkís hf., Reykjavík

Föstudaginn 22. október  2021 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.