Cambridge Plaza Hotel Company ehf. og Kolufell ehf. óska eftir tilboðum í verkið:
AUSTURBAKKI 2 – REITUR 5 – JARÐVINNA 1. ÁFANGI
Verkið felur í sér aðstöðusköpun á vinnusvæðinu, jarðvinnu, útvegun, niðurrekstur og frágang steyptra staura og steypta burðarplötu á fyllingu vegna fyrirhugaðrar byggingar hótels og íbúða á reit 5 á lóðinni Austurbakka 2 í Reykjavík.
Helstu magntölur eru:
Gröftur. 43.800 m3
Fyllingar undir hús: 24.700 m3
Steyptir staurar: 721 stk/3600 lm -útvegun, niðurrekstur, frágangur
Steypumót: 1.235 m2
Bendistál: 207.000 kg
Steinsteypa: 1.250 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. júní 2016.
Útboðsgögn fást afhent á geisladiski í afgreiðslu Mannvits hf., Urðarhvarfi 6, 203 Kópavogi, frá og með miðvikudeginum 28. október 2015.
Tilboð skulu hafa borist til afgreiðslu Mannvits hf., Urðarhvarfi 6, 203 Kópavogi eigi síðar en miðvikudaginn 2. desember 2015, kl. 10:00. Tilboðin verða opnuð þar og þá í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska og hafa skilað inn tilboði í verkið.
Heimild: Mannvit hf.