Home Fréttir Í fréttum Gamla brúin hangir enn uppi og stóðst þriðja stórhlaupið

Gamla brúin hangir enn uppi og stóðst þriðja stórhlaupið

136
0
Fljótið gróf undan eystri brúarstöplinum í Skaftárhlaupinu árið 2015. ARNAR HALLDÓRSSON

Verulega hefur dregið úr hlaupinu í Skaftá í dag og er minni hætta talin á því að vatn flæði yfir hringveginn.

<>

Mesta furðu vekur að gamla brúin yfir Eldvatn skuli enn hanga uppi.

Mestu ummerki Skaftárhlaupanna, úr eystri katlinum í þessari viku og þeim vestri í síðustu viku, sjást uppi á Vatnajökli.

Þar hefur íshellan yfir báðum Skaftárkötlunum núna sigið um eitthundrað metra við það að hlaupvatnið braut sér leið úr hundrað metra djúpum stöðuvötnum, sem jarðhitasvæði undir jöklinum mynda.

Neðst í kötlunum báðum sjást núna lón með fljótandi ís.

Lón sést núna í botni beggja sigkatlanna í Skaftárjökli.
INGÓLFUR ARNARSON

Rennsli Skaftár var síðdegis í dag aðeins um þriðjungur af því sem mest var í fyrradag. Samt er áin enn bólgin og þrefalt meiri en venjulega.

Þótt hlaupinu sé að slota sjá bændur fram á óþægindi en Gísli Halldór Magnússon á Ytri-Ásum var spurður um hver yrðu eftirköstin:

„Bara eins og vant er. Leir og drulla og drasl og eitthvað svoleiðis,“ svarar Gísli.

Ferðamenn fylgdust með hlaupinu í forundran.

„Þetta virðist vera upplifun fyrir suma. Ég hef hitt hérna ferðamenn sem voru meðvitaðir um þetta ástand og voru bara að skoða þessi ósköp,“ segir Svanur Kristinsson lögregluvarðstjóri.

Í Eldhrauni segir vegaverkstjórinn Ágúst Bjartmarsson að það sé orðið ólíklegra að vatn flæði yfir hringveginn en vill þó ekki útiloka að það gerst í svokölluðum Dyngjum á næstu dögum.

Brýrnar yfir Eldvatn hjá Ásum í hlaupinu í gær. Nýja bogabrúin er vinstra megin en gamla brúin hægra megin.
ARNAR HALLDÓRSSON

Í haupinu árið 2015 grófst undan eystri stöpli brúarinnar yfir Eldvatn hjá Ásum og var hún í framhaldinu dæmd ónýt.

Talað var um það í hlaupinu fyrir sex árum að brúin hefði hangið uppi á lyginni. Hún er enn á sínum stað, þrátt fyrir þrjú stórhlaup; árin 2015 og 2018 og svo núna:

„Hún hangir og er á þokkalega góðu bergi, held ég. Nema bara ef það fer vatn bak við hana. En bergið sem hún stendur á, eða stöpullinn, hann er nokkuð góður,“ segir Gísli á Ásum.

Og nýja brúin sem reist var í staðinn er núna búin að fá eldskírnina; fyrsta stórhlaupið. Gísli sá brotna úr árbakkanum ofan hennar og því vaknar sú spurning hvort hlaupin ógni henni einnig í framtíðinni.

Sorfist hefur úr árbakkanum ofan við nýju brúna. Á miðri mynd sést sprunga og má ætla að stutt sést í að það stykki falli niður.
ARNAR HALLDÓRSSON

„Ef það koma svona stór hlaup áfram þá endar það með því að vatnið kemst hérna suður í hraunið. Og þá er það komið í raun á bak við brúna og ekki gott að fást við það þá,“ segir Gísli.

Heimild: Visir.is