Mestu íbúðabyggingar í landsbyggðarþorpi hérlendis um árabil eru í Vík Mýrdal. Þar er þessa dagana verið að flytja inn í tíu nýjar íbúðir í tveimur raðhúsalengjum.
Utan suðvesturhornsins verður það sennilega bara Akureyri, með líklega yfir þrjátíu nýjar íbúðir, sem toppar Vík á þessu ári í byggingu nýs íbúðarhúsnæðis. Hlutfallslega verður aukningin þó margfalt meiri í Vík þar sem búa aðeins um 300 manns.
Smíði raðhúsanna í Vík hófst í fyrrahaust, flutt var inn í fyrstu íbúðirnar í vor og þær síðustu verða tilbúnar í næstu viku.
„Okkur er ánægjulega að fjölga,“ segir Elín Einarsdóttir, oddviti Mýrdalshrepps, í viðtali í fréttum Stöðvar 2. „Árið 2012 vorum við í sögulegu lágmarki hér í Mýrdalshreppi. Síðan þá hefur okkur fjölgað um sextíu manns.“
Fyrir byggð sem fjarað hafði undan í áratugi eru umskiptin vegna ferðamanna, og þau má glöggt sjá þessa dagana, nú þegar komið er fram í miðjan októbermánuð. Fyrir 5-6 árum var ferðaþjónustan löggst í dvala um þetta leyti árs. Nú er þar allt morandi í ferðamönnum, fjöldi rútubíla, og 3-4 heilsárshótel í rekstri, en áætlað er að hálfmilljón ferðamanna heimsæki Vík í ár. Starfsfólk ferðaþjónustunnar þarf líka þak yfir höfuðið.
„Ferðaþjónustan er orðin mjög stór, okkar stærsta atvinnugrein hér. Hún er mannaflsfrek. Það vantar náttúrlega bara íbúðarhúsnæði fyrir vinnandi fólk,“ segir oddvitinn.
Það voru raunar fjórir eigendur ferðaþjónustufyrirtækja í Mýrdalshreppi sem stóðu að smíði húsanna, þeirra á meðal Jóhannes Kristjánsson á Höfðabrekku, en hann segir allar íbúðirnar hafa selst fljótt,- telur raunar að þeir hefðu getað selt tíu í viðbót.
Sveitarfélagið tók þátt í verkefninu með því að kaupa tvær íbúðanna. „Það er komið fólk í hverja einustu íbúð og vantar húsnæði enn,“ segir Elín.
Jóhannes Kristjánsson segir að þeir hafi kappkostað að halda byggingarkostnaði í lágmarki og selt íbúðirnar á kostnaðarverði, um sextán milljónir króna, en hver þeirra er 91 fermetri. Þessi litli kostnaður virðist lykilatriði á landsbyggðinni.
„Það stendur svolítið i fólki að byggja sér húnæði hér því byggingarkostnaður er oft töluvert yfir raunvirði eignarinnar þegar hún fer í sölu. En hins vegar er það það jákvæða við þessa þróun hjá okkur, bæði fólksfjölgun og aukin umsvif, að hér hefur fasteignaverð hækkað töluvert mikið,“ segir Elín Einarsdóttir oddviti.
Heimild: Visir.is