Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við hluta Faxabrautar á Akranesi

Framkvæmdir við hluta Faxabrautar á Akranesi

90
0

Hafin er vinna við hluta Faxabrautar á Akranesi, milli Faxatorgs og Jaðarsbrautar. Borgarverk, sem er verktaki við framkvæmdirnar, áætlar að loka götupartinum næstu daga.

<>

Við þetta lokast Sandabraut við Faxabraut sem og aðgengi að húsum sem hafa aðkomu frá Faxabraut. Sandabraut verður því botnlangagata eftir lokun.

Gatan verður ekki einstefnugata á meðan, ekið verður í báðar áttir. Biðskylda verður við Skagabraut. Hægt er að leggja bílum á bílastæði við Garðabraut 2.

Um næstu helgi, dagana 7. – 8. ágúst, eru áform um útskipun á brotajárni frá Akraneshöfn. Samkomulag hefur orðið milli aðila um að umferð flutningabíla með brotajárn verði um Faxabraut.

Verktakinn Borgarverk mun því haga lokunum á götupartinum samkvæmt því. Íbúar sem hafa aðkomu að húsum sínum frá Faxabraut gætu nýtt sér þessa seinkun á lokun götupartsins.

Ekki er leyfð önnur umferð um götupartinn, en umferð íbúa sem hafa aðkomu að húsum sínum frá Faxabraut og umferð flutningabíla með brotajárn.

Gera má ráð fyrir að vinna við þennan hluta Faxabrautar verði í um 5 – 6 vikur.

Heimild: Skessuhorn.is