Opnun tilboða 27. júlí 2021.
Hafnarsjóður Vesturbyggðar óskaði eftir tilboðum í verkið „Bíldudalshöfn – Landfylling 2021“.
Helstu verkþættir eru:
· Ámokstur, akstur og losun á 24.100 m3 af fyllingarefni.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. desember 2021.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu.
Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með mánudeginum 12. júlí 2021.