Home Fréttir Í fréttum Átta hundruð nýjar íbúðir byggðar í Vogunum

Átta hundruð nýjar íbúðir byggðar í Vogunum

129
0
Um 1300 manns búa í Vogunum í dag en þar hefur verið mikið byggt síðustu ár og verður mikið byggt næstu ár. MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Mikil uppbygging á sér nú stað í Sveitarfélaginu Vogum á Suðurnesjunum því þar eru að hefjast framkvæmdir við byggingu á átta hundruð nýjum íbúðum.

<>

Íbúar sveitarfélagsins í dag eru um þrettán hundruð.

Sveitarfélagið Vogar er eitt af þeim sveitarfélögum þar sem mikið er að gerast í fjölbreyttum framkvæmdum samhliða auknum íbúafjölda.

Stærsta verkefnið núna er formlega hafið en það er bygging nýs íbúðahverfi á svokölluð Grænuborgarsvæði í samvinnu við einkaaðila. Þar á að byggja 800 nýjar íbúðir á næstu 10 árum.

Ásgeir Eiríksson er bæjarstjóri í Vogunum.

„Þetta er mikil framkvæmd í ekki stærra sveitarfélagi. Það er ágætt að setja þetta í samhengi við fjölda íbúða, sem eru hér fyrir í sveitarfélaginu, þær eru tæplega 500, svona 470 og það að fá 800 íbúðir í viðbót á 10 árum er ríflega tvöföldun“, segir Ásgeir.

Hvernig viðtökur eru þið að fá við þessu nýja hverfi?

„Mér sýnist þær vera mjög góðar. Fólk er að átta sig á því að við erum það vel staðsett hér, gagnvart bæði höfuðborgarsvæðinu og alþjóðaflugvellinum, svona mitt á milli, jafn langt í báðar áttir og það eru margir, sem sjá sér hag í því.“

Nú þegar eru fyrstu húsin risin í nýja Grænuborgarhverfinu þar sem 800 íbúðir verða byggð á næstu 10 árum.
MAGNÚS HLYNUR HREIÐARSSON

Ásgeir segir nýja byggingarlandið mjög fallegt, það halli út á sjó með stórkostlegu útsýni út á Faxaflóa, norður á Snæfellsnes og á björtum og fallegum dögum sjáist Snæfellsjökul.

En hvaða fólk heldur Ásgeir að muni flytja í nýja Grænuborgarhverfið?

„Það er ekki gott að segja, það er auðvitað held ég bara þverskurður af samfélaginu, sem skoðar þennan valkost hjá okkur.

Sveitarfélagið sjálft er nýbúið að standa að uppbyggingu á svokölluðu miðbæjarsvæði þar sem sveitarfélagið réðst í gatnagerð og úthlutaði lóðum.

Það er langt komið það hverfi og þar sjáum við einmitt mjög mikinn fjölbreytileika í samsetningu íbúana.“

Þannig að þú ert bara bjartsýnn og kátur?

„Já, ég er mjög bjartsýnn fyrir hönd sveitarfélagsins og Vogarnir og sveitarfélagið allt á mikla og bjarta framtíð fyrir sér þannig að ég sé ekki annað en að við séum í góðum málum,“ segir Ásgeir.

Heimild: Visir.is