Home Fréttir Í fréttum 09.08.2021 Lyngmelur í Hvalfjarðasveit – Gatnagerð og lagnir

09.08.2021 Lyngmelur í Hvalfjarðasveit – Gatnagerð og lagnir

198
0
Mynd: Hvalfjarðarsveit

Sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit í samvinnu við Veitur, Rarik og Mílu, óskar eftir tilboðum í gatnagerð á nýrri götu, Lyngmelur í Melahverfi, ásamt því að leggja tilheyrandi lagnir.

<>

Helstu magntölur:
Gröftur gatna 4.000 m3
Fyllingar gatna 7.500 m3
Fráveitulagnir 830 m
Malbikun 2.000 m2

Verktími er til 15. júní 2022. Þó skal ljúka öllu verkinu utan malbikun götu fyrir 30. janúar 2022.

Útboðsgögn eru afhent á stafrænu formi með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur nafn bjóðanda, ásamt nafni, netfangi og símanúmeri tengiliðs bjóðanda.

Tilboð verða opnuð mánudaginn 9. ágúst 2021 kl. 10.00 í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranesi.