Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Hringvegur (1) um Hverfisfljót og Núpsvötn (EES)

Opnun útboðs: Hringvegur (1) um Hverfisfljót og Núpsvötn (EES)

342
0

Opnun tilboða 13. júli 2021. Bygging brúar á Hverfisfljót og Núpsvötn ásamt endurgerð vegakafla beggja vegna.

<>

Hverfisfljót: Verkið felst í byggingu nýrrar 74 m langrar og tvíbreiðrar brúar yfir Hverfisfljót, um 20 m neðan núverandi brúa.

Brúin verður verður samverkandi stálbitabrú með steyptu gólfi í þremur höfum. Einnig er innifalin vegagerð til að tengja nýja brú við núverandi vegakerfi.

Nýr vegur og ný brú verða í nýju vegstæði á 1,1 km löngum kafla og endurbyggður vegur í núverandi vegstæði á 1,1 km löngum kafla.

Nýir vegir verða því um 2,1 km. Einnig verður byggður nýr áningarstaður við Hverfisfljót í stað núverandi áningarstaðar sem hverfur undir nýjan veg.

Núpsvötn: Verkið felst í byggingu nýrrar 138 m langrar tvíbreiðrar brúar yfir Núpsvötn á Hringvegi (1), ofan núverandi brúarstæðis, auk tengivega við núverandi vegakerfi beggja vegna.

Brúin verður eftirspennt steinsteypt brú með steyptu gólfi í fimm höfum. Nýr vegur og ný brú verða í nýju vegstæði á 1,9 km löngum kafla. Einnig verður byggður nýr áningarstaður vestan nýju brúarinnar.

Helstu magntölur eru:

Gröftur 650 m3
Fylling 86.500 m3
Styrktarlag 22.200 m3
Burðarlag 8.800 m3
Tvöföld klæðing 40.400 m2
Vegrið 1.376 m
Mótafletir 3.900 m2
Steypustyrktarjárn 249.000 kg
Spennt járnalögn 37.700 kg
Steinsteypa 2.700 m3

Verkinu skal að fullu lokið 15. nóvember 2022.