Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með malbiki á Snæfellsnesi árið 2021.
Helstu magntölur:
- Yfirlögn: 15.800 m2
Verki skal að fullu lokið 30. september 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent frá 21. júní í rafræna útboðskerfinu TendSign og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 6. júlí 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.