Home Fréttir Í fréttum 01.07.2021 Reykjavíkurborg. Endurnýjun gönguleiða – útboð 2

01.07.2021 Reykjavíkurborg. Endurnýjun gönguleiða – útboð 2

89
0
Mynd: mbl.is/​Hari

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:

<>

Endurnýjun gönguleiða – útboð 2, útboð nr. 15250

Yfirlit yfir þau verkefni sem verkkaupi hyggst ráðast í sést á yfirlitsmyndum sem fylgir verklýsingunni. Rétt er að leggja áherslu á að listi yfir verkefni er ekki endanlegur eða tæmandi og geta ný verkefni bæst við og/eða önnur fallið út.

Um er að ræða endurnýjun á malbikuðum gönguleiðum og felst verkið í upprifi á yfirborði núverandi gönguleiða, jarðvegsskiptum þar sem þörf er á, yfirborðsfrágangi hliðarsvæða ásamt niðurtekt og endurnýjun á ljósastaurum og ljósastrengjum.

Einstakir verkstaðir eru á fjórum stöðum í borginni eins og sýnt er á yfirlitsmyndum í teikningahefti og skal verktaki gera ráð fyrir því í tilboði sínu.

Verk þetta skal vinna skv. útboðs- og verklýsingu þessari og öðrum fylgigögnum, sjá m.a. gr. 0.3.1.

Verkið skal vinna í samræmi við ákvæði gildandi reglugerða sem eiga við þessa framkvæmd og er verktaki að fullu ábyrgur fyrir því að þeim sé fylgt.

Lögð er áhersla á að allar magntölur eru áætlaðar (sjá nánar grein 0.5.5) og geta breyst. Helstu magntölur útboðsins eru:

Uppúrtekt                                               750 m³

Losun klappar                                        138 m3

Fylling                                                    500 m³

Drenrör                                                   122 m

Malbikun                                                950 m²

Niðurtekt/uppsetning ljósastólpa                8 stk.

Götuljósastrengir                                    130 m

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 14:00 þann 18. júní 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is 

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15, 1. júlí 2021.