Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir á tilteknum leiðum í uppsveitum Árnessýslu 2021-2024.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar til tveggja ára eitt ár í senn.
- Heildarlengd vegakafla er 309 km.
- Akstur vörubíla á snjómokstursleiðunum er áætlaður 52.000 km. á ári.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með sunnudeginum 13. júní 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 13. júlí 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.