Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar óskar eftir tilboðum í verkið Göngu- og hjólastígur í Garðahrauni.
Verkið felst í að gera göngustíga tilbúna fyrir malbik og uppsetningu götulýsingar meðfram stígum.
Garðahraun er friðlýst svæði og mun Umhverfisstofnun hafa sér eftirlit með framkvæmdum.
Helstu magntölur eru:
Göngustígar 1.404 m
Ljósastólpar 40 stk.
Lokaskiladagur verksins er 15. nóvember 2021.
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á vef Garðabæjar.
Tilboð skulu hafa borist bæjarverkfræðingnum í Garðabæ, eigi síðar en þriðjudaginn 29. júní 2021 kl. 11:30, þar sem þau verða opnuð.
Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar