Home Fréttir Í fréttum 15.06.2021 Hringvegur um Þvottárskriður, hrunvarnir 2021

15.06.2021 Hringvegur um Þvottárskriður, hrunvarnir 2021

157
0
Hreins­un­ar­starf í Þvott­árskriðum mbl.is/​Björn Jó­hann

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í hrunvarnir í Þvottárskriðum, norðan Hvalness í Lóni.

<>

Um er að ræða uppsetningu á um 385 m af stálþili og 190 m af forsteyptum vegriðseiningum, hreinsun vegrása og gerð skeringa.

Helstu magntölur eru:

  • Skeringar með vegi                        7.600 m3
  • Fylling                                          2.150 m3
  • Uppsetning á stálþili                         385 m
  • Forsteyptar vegriðseiningar               190 m

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. október 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 31. maí 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 15. júní 2021.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.