Home Fréttir Í fréttum 25.06.2021 Hringvegur (1) um Hverfisfljót og Núpsvötn, eftirlit og ráðgjöf

25.06.2021 Hringvegur (1) um Hverfisfljót og Núpsvötn, eftirlit og ráðgjöf

118
0

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Hringvegar (1) um Hverfisfljót og Núpsvötn,

<>

Verkið innifelur byggingu brúa á Hverfisfljót og Núpsvötn ásamt endurgerð vegkafla beggja vegna. Að auki er hluti af verkinu gerð áningarstaða við báðar brýrnar.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð 1. nóvember 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með föstudaginn 28. maí 2021  og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 föstudaginn 25. júní 2021.

Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu.  Miðvikudaginn 30. júní  2021 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.