Home Fréttir Í fréttum 16.06.2021 Selásskóli, endurgerð lóðar 2021

16.06.2021 Selásskóli, endurgerð lóðar 2021

86
0

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:

<>

Selásskóli, endurgerð lóðar 2021, útboð nr. 15222

Verkið er endurgerð hluti lóðar Selásskóla við Selásbraut 109, 110 Reykjavík. Svæðið sem um ræðir er norðan, austan og sunnan við skólann um það bil 1.200 m².

Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á hluta leiksvæða viðkomandi svæðis. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt.

Helstu verkliðir eru leiktæki, yfirborðsfrágangur kringum þau, jarðvinna og hellulögn.

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00 þann 1. júní 2021, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is 

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.

Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30, 16. júní 2021.