Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvarnir Snæfellsbæ. Verkið felst í byggingu sjóvarna vestan Gufuskála og við Ólafsbraut í Ólafsvík, heildarlengd um 340 m.
Helstu magntölur:
- Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 2.700 m3
- Upptekt og endurröðun grjóts um 3.500 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 31. júlí 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 16. mars 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. mars 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.