Home Fréttir Í fréttum Vitni leidd fyrir dómara vegna risalekans í Háskólanum

Vitni leidd fyrir dómara vegna risalekans í Háskólanum

189
0
Mynd: Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Skýrslugjöf vitna fór fram í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna stóra vatnslekans sem varð í mannvirkjum Háskóla Íslands er kaldavatnsæð nálægt Suðurgötu gaf sig svo vatn flæddi inn í byggingar skólans.

<>

Var leitt í ljós að mistök í framkvæmd á vegum Veitna olli slysinu. Atvikið varð aðfaranótt 21. janúar síðastliðins.

Blaðamaður DV var viðstaddur skýrslugjöfina í morgun. Sérfræðingar og verkefnastjórar hjá Veitum auk fulltrúa verktaka voru meðal vitna sem leidd voru fyrir dómara.

Lögmenn Háskóla Íslands óskuðu eftir því að skýrslugjöf vitna færi fram, en stefna hefur þó enn ekki verið gefin út.

Lýstu vitnin upplifun sinni af lekanum sem olli mörg hundruð milljóna tjóni á húsakynnum Háskóla Íslands.

Lögmenn Háskóla Íslands, Veitna, VÍS, verkfræðistofunnar Mannvits og SS verktaka spurðu vitnin á víxl um atvikin sem leiddu til lekans. Beindu þeir sérstaklega spurningum sínum að því hver bar ábyrgð á ákvarðanatöku, verkstjórn og boðun verkfunda.

Ljóst er að gríðarlega miklir fjárhagslegir hagsmunir eru undir í málinu og því ekki ólíklegt að skýrslugjöf vitna fyrir dómi í dag verði ekki síðasta aðkoma dómstóla að málinu.

Heimild: Dv.is