Home Fréttir Í fréttum 04.03.2021 Hlégarður Mosfellsbæ, Framtíðarsýn – 1.áfangi

04.03.2021 Hlégarður Mosfellsbæ, Framtíðarsýn – 1.áfangi

617
0
Hlégarður. Mynd: Mosfellsbær

Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Hlégarður framtíðarsýn, 1.áfangi.

<>

Til stendur að fara í endurbætur á félagsheimilinu Hlégarði við Háholt 2 í Mosfellsbæ. Verkið sem nú er boðið út er 1. áfangi fyrirhugaðra endurbóta.

Hlégarður er félagsheimili og menningarhús sem staðsett er í hjarta Mosfellsbæjar og rekstur þess er leigður út. Upprunalega húsið var vígt við hátíðlega athöfn þann 17. mars 1951. Síðan þá hefur verið byggt við húsið minnst tvisvar sinnum og gerðar hafa verið á því ýmsar aðrar breytingar og endurbætur í áranna rás.

Helstu verkþættir eru:

Í þessum 1. áfanga verkefnisins á meðal annars að skipta um gólfefni, á meginhluta 1. hæðar, rífa niður eldri innréttingar í veitingasal og byggja nýjar, skipta um hurðir, endurbæta salernisaðsöðu og aðlaga lagna- loftræsi- og rafkerfi að breytingum.

 

Helstu magntölur eru:

Málun                            1.027 m²
Ílögn                                 225 m²
Flotun gólfa                       432 m²
Parkett                              366 m²
Stálsmíði                        1.100 kg
Ílögn og bendinet               235 m²
Pípulagnir, rör                       55 m
Loftræsing, blikk                  55 kg
Raflagnir, strengir               510 m

Verkinu skal að fullu lokið 14. ágúst 2021.

Í ljósi samkomutakmarkana verða útboðsgögn afhent rafrænt til þeirra sem þess óska, á netfangið mos@mos.is, Þjónustuver Mosfellsbæjar, frá og með kl. 11:00 á þriðjudeginum 9. febrúar 2021. Tilboðum skal skilað með sama hætti, á netfangið mos@mos.is, eigi síðar en fimmtudaginn 4. mars 2021 kl. 11:00 og þau opnuð á rafrænum opnunarfjarfundi hálftíma síðar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.