Home Fréttir Í fréttum Skarðshlíðarhverfi í Hafnarfirði að seljast upp

Skarðshlíðarhverfi í Hafnarfirði að seljast upp

163
0
Hér má sjá hvernig Skarðshlíðarhverfi fellur að núverandi byggð. Hamranesið mun byggjast upp við hlið Skarðshlíðarhverfis. Heimild: Hafnarfjörður.is

Á árinu 2020 var úthlutað 24 lóðum í Skarðshlíðarhverfi undir 38 íbúðir og í 1. áfanga í Hamranesi 8 fjölbýlishúsalóðum fyrir alls 296 íbúðir.

<>

Allar einbýlishúsalóðir Skarðshlíðar eru seldar og hver að verða síðastur til að tryggja sér lóð undir sérbýli á svæðinu. Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gær voru samþykktar umsóknir um 14 lóðir.

Þannig eru nú einungis 28 lóðir lausar til úthlutunar í öllu Skarðshlíðarhverfi; 3 lóðir fyrir parhús, 24 lóðir fyrir tvíbýlishús og 1 lóð fyrir þríbýlishús. Þegar liggur einhver fjöldi umsókna fyrir fund bæjarráðs Hafnarfjarðar þann 28. janúar nk.

„Þessi mikli áhugi á sérbýlislóðum í hverfinu er til marks um hve frábær staðsetning Skarðshlíðarhverfisins er. Tvöföldun Reykjanesbrautar, tilkoma Ásvallabrautar og tilfærsla á Hamraneslínum hefur án efa ýtt undir áhugann á hverfinu sem verður til lengri tíma litið með fallegri og fjölskylduvænni íbúðahverfum á stór-höfuðborgarsvæðinu.

Greiður aðgangur að verslun og þjónustu, öflugu íþróttastarfi, grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla hefur líka mikið að segja enda einstakt á nýbyggingarsvæðum sem þessum. Einnig heillar nálægðin við náttúruna og fallegt uppland Hafnarfjarðar sem sífellt fleiri njóta með hverju árinu sem líður,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Vinsælt búsetusvæði með uppland Hafnarfjarðar í bakgarðinum

Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Skarðshlíðarhverfi undanfarið. Frumbyggjar fluttu í hverfið sumarið 2019 og þá þegar var starfsemi Skarðshlíðarskóla komin á fullt og leikskóli opnaður um haustið undir sama þaki.

Sumarið 2020 var húsnæði skólasamfélagsins í Skarðshlíð fullbyggt og hýsir það í dag heildstæðan grunnskóla, fjögurra deilda leikskóla, tónlistarskóla og íþróttahús fyrir bæði skólastigin. Þjóna skólanir og starfsemi skólanna nýrri byggð í Skarðshlíð og Vallahverfi að hluta.

Einnig er framundan frekari uppbygging íþróttamannvirkja á Ásvöllum sem bætir enn nærliggjandi þjónustu og aðstöðu i hverfunum. Tvöföldun Reykjanesbrautar lauk í árslok 2020 og þá um vorið hófust framkvæmdir við Ásvallabraut sem tengir saman Vallahverfi, Skarðshlíðarhverfi og Ásland.

Ráðgert er að Ásvallabrautin verði tilbúin haustið 2021 og þar með verða Skarðshlíð og hverfi innarlega á Völlunum betur tengd Kaldárselsvegi og Reykjanesbraut.

Skipulagsvinna, gatnagerð og innviðauppbygging er í fullum gangi þessa dagana í Hamranesi sem liggur við hlið Skarðshlíðarhverfis og Vallahverfis og verður kapp lagt á uppbyggingu á hverfinu til að mæta eftirspurn og áhuga eftir hvorutveggja íbúðum og lóðum á svæðinu.

„Hamranesið er um 25 hektara nýbyggingarsvæði og er grunn hugmyndin sú að skipulag hverfisins endurspegli þörf á markaði eftir fjölbreyttum stærðum íbúða. Hamranesið verður einstakt hverfi“ segir Rósa.

Heimild: Hafnarfjordur.is