F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Dúkalagnir í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar 2021. Hverfi 6 og 7, 8, 9 og 10, útboð nr. 15078
Verkið felst í rifi og dúklagningu, linoleumdúka,/vinyldúka, í 19 fasteignum Reykjavíkurborgar.
Fasteigninar eru: Ársel, Fellaskóli, Norðlingaskóli leikskóli, Árbæjarskóli, Ártúnsskóli Kvarnarborg, Gerðuberg 1, Hólabrekkuskóli, Norðlingaskóli, Selásskóli, Seljaskóli, Ölduselsskóli, Bakkaborg, Blásalir, Jöklaborg, Rauðaborg, Seljaborg, Bakkaberg Berg, Fífuborg, Engjaborg.
Helstu magntölur eru:
Linóleumdúkar: 3.636 m2
Vinyldúkar: 70 m2
Lokaskiladagur verksins er 31. desember 2021.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:00 þann 11. janúar 2021.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:20 þann 2. febrúar 2021.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupaskrifstofu 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is