Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Undir­rituðu samning vegna upp­steypu nýja Land­spítalans

Undir­rituðu samning vegna upp­steypu nýja Land­spítalans

382
0
Unnur Brá Konráðsdóttir, Páll Daníel Sigurðsson, Ásta Valdimarsdóttir, Gunnar Svavarsson og Páll Matthíasson. Mynd: NLSH

Stjórnvöld og Eykt skrifuðu í dag undir samning um uppsteypu á nýju þjóðarsjúkrahúsi. Stefnt að þvi að uppsteypan hefjist fljótlega eftir áramót. Meðferðarkjarninn, sem verður um 70 þúsund fermetrar að stærð, er stærsta byggingin í uppbyggingu við nýjan Landspítala við Hringbraut.

<>

Aðrar byggingar eru rannsóknahúsið, bílastæða og tæknihús og nýtt sjúkrahótel sem þegar hefur verið tekið í notkun.

Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, og Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH, skrifuðu undir samninginn fyrir hönd stjórnvalda, en Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra forfallaðist.

Fyrir hönd Eyktar undirritaði Páll Daníel Sigurðsson framkvæmdastjóri samninginn, en auk þess vottuðu Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður stýrihóps um skipulag framkvæmda við Landspítala, samninginn ásamt Páli Matthíassyni forstjóra Landspítala.

Kostnaðaráætlun verksins var metin rúmlega 10,5 milljarðar en tilboð Eyktar hljóðaði upp á 8.687.513.317 krónur, sem nemur um 82,67 prósentum af áætluðum kostnaði.

Meðferðarkjarninn verður stærsta byggingin í Hringbrautarverkefninu, en í húsinu verður þungamiðjan í starfsemi Landspítalans.
Mynd: NLSH

Undirstöður og kjallarar

Í tilkynningu frá NLSH segir að helstu verkefni Eyktar séu að steypa upp undirstöður og tvo kjallara byggingarinnar ásamt þvi að sjá um alla aðstöðusköpun á framkvæmdasvæðinu.

„Burðarvirki þess hluta byggingarinnar eru veggir, súlur, eftirspenntar plötur, auk botnplötu og undirstaðna. Þá sér Eykt um að steypa upp efri hluta byggingarinnar, þ.e. hæðir 1 – 6.

Burðarvirki efri hluta byggingarinnar er í meginatriðum rammar, súlur og eftirspenntar plötur. Einnig verður ráðist í að steypa tengiganga af hálfu Eyktar, leggja lagnir og smíða stálvirki við lyftukjarna byggingarinnar.

Umfangið er mikið en mótafletir eru áætlaðir um 220.000 m² og steypan nær 60.000 m³ þegar allt er til talið.
Mynd: NLSH

Umfangið er mikið en mótafletir eru áætlaðir um 220.000 m² og steypan nær 60.000 m³ þegar allt er til talið.

Áætlað er að bendistálið sé um 12 þúsund tonn en meðferðarkjarninn er um 70.000 m² eða um 320.000 m³ með tengigöngum í verkinu. Við hlið meðferðarkjarnans verður síðan reistur tveggja hæða bílakjallari sem er um 7.000 m².

Í tilkynningu frá NLSH segir að helstu verkefni Eyktar séu að steypa upp undirstöður og tvo kjallara byggingarinnar ásamt þvi að sjá um alla aðstöðusköpun á framkvæmdasvæðinu.
Mynd: NLSH

Nánar um meðferðarkjarnann:

Meðferðarkjarninn verður stærsta byggingin í Hringbrautarverkefninu, en í húsinu verður þungamiðjan í starfsemi Landspítalans. Gerðar hafa verið sambærilegar kröfur um aðbúnað í meðferðarkjarna og í nýjum háskólasjúkrahúsum í nágrannalöndum okkar.

Meðferðarkjarninn er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga. Aðalhönnuðir hússins eru Corpus hópurinn en beitt er aðferðafræði notendastuddrar hönnunar þ.a. starfsmenn Landspítalans koma að hönnunarferlinu,“ segir í tilkynningunni.

Heimild: Visir.is