F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verkefni:
Ráðhús Reykjavíkur – bílastæðahús, útboð nr. 15048
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Til stendur að gera við akstursleiðir þriggja palla bílastæðahússins ásamt römpum millli palla og rampi inn í húsið.
Helstu magntölur:
Viðgerðir á pöllum, vinna niður steypu 10-15mm 1.050 m2
Háþrýstiþvottur 1.050 m2
Endurnýjun gólfflatar palla, flotun, yfirborðsefni 1.050 m2
Verklok:
1.áfangi: 31.12.2020
2.áfangi: 31.3.2021
3.áfangi: 15.5.2021
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 12:00 þann 9. nóvember 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, þriðjudaginn 24. nóvember 2020.