Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Bíldudalshöfn: Grjótgarður og útrás

Opnun útboðs: Bíldudalshöfn: Grjótgarður og útrás

265
0

Tilboð opnuð 3. nóvember 2020. Hafnasjóður Vesturbyggðar óskaði eftir tilboðum í byggingu grjótgarðs og lagningu útrásar.

<>

Verkið felst í fyllingu undir og gerð grjótgarðs, vegna landfyllingar austan við núverandi höfn í Bíldudal.

Verkið felst einnig í lagningu nýrrar útrásar fyrir fráveitu og tengingu inn á núverandi fráveitulögn ásamt útrásarbrunni.

Helstu magntölur:

·         Fylling undir grjótgarð 15.000 m³.

·         Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 14.500 m3.

·         Endurnýting grjóts 4.500 m³

·         Lagning um 180 m útrásar, í gegnum garð og svo með steyptum sökkum

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. apríl 2021.