Home Fréttir Í fréttum Djúp hola uppgötvaðist í þjóðveginum norðan Djúpavogs

Djúp hola uppgötvaðist í þjóðveginum norðan Djúpavogs

128
0
Mynd: Eiður Ragnarsson
Djúp hola uppgötvaðist í þjóðveginum í gær eftir að vegfarandi tilkynnti lögreglu um ójöfnu í veginum rétt innan við Djúpavog, norðan við bæinn.
Eiður Ragnarsson, ásamt samstarfsmönnum, fékk beiðni frá Vegagerðinni um að athuga ójöfnuna.

Þegar grafan hjó í veginn reyndist ójafnan gríðarstór hola. Eiður sagði í samtali við fréttastofu að holan sé minnst tveir og hálfur metri á dýpt.

<>

Mildi þykir að holan uppgötvaðist svona og olli ekki tjóni né slysum. „Í holuna fóru um tólf rúmmetrar af möl sem er dágóður slatti,“ sagði Eiður.

Hann segir gamalt ræsi hafa farið að gefa sig og holan því myndast.

https://www.facebook.com/1277140703/videos/10223295686441899/?extid=kixl6gzikNRKeihq

Heimild: Ruv.is