Unesco, menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, varar við því að um 60 sögufrægar byggingar í Líbanon eigi á hættu að hrynja eftir sprenginguna í höfuðborginni Beirút í síðustu viku.
Áhrifa sprenginganna gætir um alla borg og misstu um þrjú hundruð þúsund manns heimili sitt.
Mest voru áhrifin í hverfunum Gemmayzeh og Mar-Mikhael, sem bæði eru steinsnar frá höfninni þar sem 2.700 tonn af ammóníum-nítrati sprungu í yfirgefinni vöruskemmu.
Meðal bygginga sem þarfnast brýns viðhalds eru Þjóðminjasafnið í Beirút, Fornleifasafn ameríska háskólans í Beirút og Sursock-safnið.
„Unesco heitir því að leiða viðbrögð á sviði menningar, en þau verða að vera þáttur í víðtækri enduruppbyggingu á svæðinu,“ segir í yfirlýsingu Enerste Ottone, aðstoðarframkvæmdastjóra menningarmála hjá Unesco. Mikilvægt væri að ráðast í framkvæmdir til að tryggja að byggingar væru vatnsheldar áður en haustrigningartímabilið hefst.
Sarkis Khory, yfirmaður fornleifadeildar í menningarmálaráðuneyti Líbanon, sagði á fjarfundi með fulltrúum Unesco fyrr í vikunni að 8.000 byggingar hið minnsta hefðu farið illa út úr sprengingunni. „Meðal þeirra eru 640 sögufrægar byggingar, þar af um 60 sem eiga á hættu að hrynja.“ Viðhaldi sögulegra bygginga í borginni hefur lengi verið ábótavant og hafa voru áhyggjur af ástandi þeirra þegar til staðar, áður en sprengingin varð.
Heimild: Mbl.is/ AFP