Hafnarstjórn Snæfellsbæjar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.
Verkið fellst í dýpkun á lausu efni í Ólafsvíkurhöfn og Rifshöfn.
Helstu magntölur:
- Dýpkun í Ólafsvíkurhöfn alls um 50.000 m3.
- Dýpkun í Rifshöfn alls um 100.000 m3.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. nóvember 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 22. júní 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 7 júlí 2020.
Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og verðtilboð.