F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Eiðsgrandi. Boðagrandi – Ánanaust. Hjólastígur, útboð nr. 14916.
Verkið felst í að útbúa áframhaldandi hjólastíg meðfram Eiðsgranda. Tengja skal nýjan hjólastíg við núverandi hjólastíg á móts við Boðagranda og enda með tengingu við núverandi göngustíg við hringtorg á mótum Eiðagranda, Hringbrautar og Ánanausta.
Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:
– Rif og förgun á malbiki.
– Fullnaðarfrágangi fyllinga og jöfnunarlags undir stígsvæði.
– Malbikun hjólastígs meðfram Eiðsgranda.
– Uppsetning á lýsingu meðfram hjólastíg
– Fullnaðarfrágangi á viðvörunahellum og uppsetning á skiltum
Helstu magntölur eru:
- Gröftur og brottakstur 1.650 m3
- Malarfylling 1.300 m3
- Malbikun stíga 1.600 m2
- Ljósastólpar 16 stk.
- Þökulögn 1.100 m2
Lokaskiladagur verksins er 30. október 2020.
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00, þann 24. júní 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 8. júlí 2020.