Home Fréttir Í fréttum Hefja byggingu á 124 leigu og búseturéttaríbúðum í Reykjavík

Hefja byggingu á 124 leigu og búseturéttaríbúðum í Reykjavík

243
0

Bjarg íbúðafélag og Búseti húsnæðissamvinnufélag hefja byggingu á 124 leigu og búseturéttaríbúðum á Tangabryggju í Reykjavík

<>

Skóflustunga að 124 nýjum íbúðum sem Bjarg íbúðafélag og Búseti húsnæðissamvinnufélag byggja við Tangabryggju í Bryggjuhverfi Reykjavíkur var tekin í gær kl. 13:30.

Byggingarfélagið ÍSTAK mun sjá um byggingu fjölbýlishúsanna. Verkfræðistofan Ferill sá um verkfræðihönnun og arkitektahönnun var í höndum Arkþings.

Félögin byggja á sameiginlegum reit en hvort með sínar áherslur, enda Bjarg leigufélag og Búseti húsnæðissamvinnufélag.

Nú þegar er Bjarg með yfir 200 íbúðir í útleigu á þremur ólíkum stöðum, á Móavegi í Grafarvogi, Urðarbrunni í Úlfarsárdal og Asparskógum á Akranesi.

Þá eru framkvæmdir við rúmlega þrjúhundruð nýjar íbúðir komnar vel á veg og rúmlega 500 íbúðir eru í undirbúningsferli.

Bjargi er ætlað að skapa tekjulægri hópum öruggt og gott húsnæði. Íbúðir félagsins eru því afar mikilvæg viðbót inn á húsnæðismarkaðinn.

Búseti leggur áherslu á að svara þörfum samfélagsins á hverjum tíma. Hjá félaginu er að finna mikla fjölbreytni í íbúðasamsetningu eftir rúmlega þrjátíu ára starfsemi.

Innan samstæðu Búseta eru reknar í dag yfir 1.000 íbúðir og eru nú um 180 íbúðir í byggingu á vegum félagsins. Íbúðirnar sem Búseti byggir nú eru við Keilugranda í Vesturbæ Reykjavíkur, Árskóga í Mjódd og Tangabryggju í Bryggjuhverfinu.

Búseti þjónar breiðum hópi félagsmanna með mismunandi þarfir þegar kemur að búsetuformi.

Bjarg er húsnæðis sjálfseignastofnun, stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu.

Heimild: Frettatiminn.is