Home Fréttir Í fréttum 12.06.2020 Mosfellsbær. Leiksvæði í Leirvogstunguhverfi og Helgafellshverfi

12.06.2020 Mosfellsbær. Leiksvæði í Leirvogstunguhverfi og Helgafellshverfi

268
0
Mynd: Helgafell.is

Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Leiksvæði í Leirvogstunguhverfi og Helgafellshverfi.

<>

Verkið felur í sér uppbyggingu og frágang á tveimur leiksvæðum í Helgafells- og Leirvogstunguhverfi með landmótun, leiktækjum, búnaði og yfirborðs­frágangi ásamt lýsingu.

Helstu magntölur:

Uppúrtekt og tilflutningur á jarðvegi – um 850 m³
Hellulagnir – um 250 m²
Grjóthleðslur – um 30 m
Hlaðinn kantur úr steyptum hleðslusteini – um 50 m²
Grjótkörfur – um 30 m
Fallvarnir/slitlag – um 110 m²
Leiktæki og búnaður – um 30 stk
Ljósastólpar – um 5 stk
Þökulagning – um 500 m²
Grassáning – um 500 m²

Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2020.

Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með klukkan 11:00 á þriðjudeginum 26. maí 2020.

Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, eigi síðar en föstudaginn 12. júní 2020 kl.11:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.