Home Fréttir Í fréttum 09.06.2020 Flóahverfi 1.áfangi, Yfirborð og lagnir 2020

09.06.2020 Flóahverfi 1.áfangi, Yfirborð og lagnir 2020

248
0
Mynd: Skessuhorn.is

Akraneskaupstaður, Veitur ohf. og Míla ehf. óska eftir tilboðum í malbikun gatna og vinnu við lagnir í götum í Flóahverfi 1. áfanga á Akranesi.

<>

Vegna fjölgunar lóða í hverfinu er um að ræða ýmsa vinnu við lagnir í hverfinu, lengingu botnlangagötu og malbikun yfirborðs gatna.

Skila skal verkinu eigi síðar en 15. október 2020.

Nokkrar stærðir:
-Malbik á götur 4.400 m2
-Fráveitulagnir 210 m
-Kaldavatnslagnir 200 m
-Hitaveitulagnir 750 m

Útboðsgögn eru einungis afhent á stafrænu formi, með því að senda tölvupóst á netfangið akranes.utbod@mannvit.is, þar sem fram kemur nafn bjóðanda ásamt netfangi, nafni og símanúmeri tengiliðs.

Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofu Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 9. júní 2020 kl. 11:05.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs