Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Samið við Landmótun vegna hönnunar á miðbæ Siglufjarðar

Samið við Landmótun vegna hönnunar á miðbæ Siglufjarðar

151
0
Mynd: Trölli.is

Lagt var fram á 651. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar vinnuskjal deildarstjóra tæknideildar, dags. 08.05.2020 þar sem fram kemur að leitað hafi verið áætlunar í hönnun á miðbæjarskipulagi á Siglufirði frá Landmótun og Landslagi.

<>

Lagt er til að gengið verði til samninga við Landmótun um hönnun á miðbæjarskipulagi á Siglufirði, útfærslu á torgum og görðum ásamt frágangi og ásýnd á gangstéttum, bílastæðum og vistgötum.

Bæjarráð samþykkir að fela deildarstjóra tæknideildar að ganga til samninga við Landmótun vegna hönnunar á miðbæjarskipulagi á Siglufirði í samræmi við gildandi deiliskipulag.

Kostnaður kr. 6.699.734 er vísað til viðauka við framkvæmdaráætlun 2020
Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 9/2020 að upphæð kr. 6.699.734 og að honum sé mætt með lækkun á handbæru fé og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu bæjarstjórnar.

Heimild: Trölli.is