Home Fréttir Í fréttum 29.04.2020 Vogaskóli – Viðhald og endurbætur utan- og innanhúss 2020

29.04.2020 Vogaskóli – Viðhald og endurbætur utan- og innanhúss 2020

249
0
Vogaskóli | Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Vogaskóli – Viðhald og endurbætur utan- og innanhúss 2020, útboð nr. 14838.

Framkvæma á viðgerðir á suðaustur-, suðvestur- og norðausturhlið á kennsluálmu, utan- og innanhúss.

Helstu viðgerðir utanhúss eru alhreinsun útveggja á suðausturhlið á kennsluálmu, steypuviðgerðir, endurnýjun á gluggum, ásamt málun.

Viðgerðir innanhúss er að fjarlægja rakaskemmdan múr/spónaplötur, einangrun og meðhöndla yfirborð útveggja. Síðan verður ný uppbygging.

Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 9:00 þann 16. apríl 2020, á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is

Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:30 þann 29. apríl 2020.