Home Fréttir Í fréttum Malbikið lengist í Grafningi í sumar

Malbikið lengist í Grafningi í sumar

195
0
Mynd: Stöð 2/Einar Árnason.

Vegagerðin hefur boðið út endurbyggingu fimm kílómetra langs kafla í Grafningi sunnan Úlfljótsvatns, milli Hlíðarár og Grafningsvegar efri.

<>

Vegarkaflinn verður byggður upp og lagður bundnu slitlagi.

Frestur til að skila inn tilboðum rennur út 28. apríl. Verkið skal allt vinnast í sumar og á því að vera að fullu lokið fyrir 1. september, samkvæmt útboðslýsingu.

Vegfarendur um Grafning hafa til þessa mátt búa við malarveg með tilheyrandi skruðningi, steinkasti og þjóðvegaryki.
Mynd: Stöð 2/Einar Árnason.

Þessi vegagerð bætist við endurbætur Grafningsvegar milli Nesjavalla og Úlfljótsvatns, sem verktakinn Suðurtak á Selfossi hefur unnið að undanfarin tvö ár.

Byrjað var sumarið 2018 á fimm kílómetra kafla milli Nesjavalla og Hagavíkur. Í fyrra hófust svo framkvæmdir við sex kílómetra kafla milli Hagavíkur og Úlfljótsvatns, en þar eru verklok áætluð 1. júní í sumar.

Heimild: Visir.is